Herjólfur til Landeyjahafnar síðdegis
13.Nóvember'20 | 14:55Herjólfur siglir til Landeyjahafnar seinni partinn í dag og þar til annað verður tilkynnt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. en ferjan hefur siglt síðustu ferðir til Þorlákshafnar sökum veðurs og sjólags við Landeyjahöfn.
Brottfarartímar frá Vestmannaeyjum eru klukkan 17:00, 19:30 og 22:00. Brottför frá Landeyjahöfn kl: 18:15, 20:45 og 23:15.
Farþegum er bent á að þegar þetta tímabil gengur í garð þá er alltaf hætta á færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Við biðlum einnig til farþega okkar að virða grímuskylduna um borð í ferjunni sem og að huga vel að sóttvörnum, segir í tilkynningunni.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).