Skerpa á hlutverkum og efla þjónustu við fatlaða
20.September'20 | 10:10Framkvæmdstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir tilfærslum á verkefnum og ábyrgðarsviðum starfsmanna innan málaflokks fatlaðs fólks, á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í liðinni viku.
Breytingar hafa verið gerðar á verkefnum og ábyrgðasviði forstöðumanns Heimaeyjar sem og fyrrum stöðu ráðgjafaþroskaþjálfa. Umsjón og eftirlit með málaflokki fatlaðs fólks sem áður var í höndum forstöðumanns Heimaeyjar flyst til umsjónarþroskaþjálfa sem staðsettur er í Rauðagerði.
Umsjónarþroskaþjálfi mun hafa umsjón og eftirlit með þjónustu sveitarfélagsins og stofnana þess á þjónustu við fatlað fólk í samstarfi og samráði við sinn yfirmann. Mun umsjónarþroskaþjálfi vera í nánu sambandi við þjónustuþega og aðstandendur þeirra og sinna þar ráðgjöf og aðstoða við eftirfylgd mála. Hann verður einnig í virku samstarfi við aðra þjónustu sveitarfélagsins s.s. skóla-, félags- og tómstundarþjónustu.
Starf forstöðumanns Heimaeyjar er bundið verkefnum Heimaeyjar sem er dagþjónusta, vernduð vinna og hæfing. Með þessum breytingum er verið að skerpa á hlutverkum og efla þjónustu og málaflokk fatlaðs fólks, segir í afgreiðslu fjölskyldu- og tómstundaráðs.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.