Eftir Írisi Róbertsdóttur
Meira lýðræði - sami kostnaður
19.September'20 | 13:58Rökin fyrir fjölgun bæjarfulltrúa úr sjö í níu eru einfaldlega þau að samsetning bæjarstjórnarinnar verður lýðræðislegri en með núverandi fyrirkomulagi.
Það verður auðveldara fyrir minni framboð að koma manni að; þröskuldurinn lækkar því það þarf færri atkvæði á bak við hvern fulltrúa. Fjölgun bæjarfulltrúa leiðir sömuleiðis til þess að það verður erfiðara að ná meirihluta í bæjarstjórn með minnihluta atkvæða. Sem sagt: samsetning bæjarstjórnarinnar verður í meira samræmi við niðurstöður kosninga.
Helstu rök minnihlutans í bæjarstjórn gegn þessari fjölgun eru þau að hún leiði til aukins kostnaðar fyrir bæjarfélagið. Þetta er augljóslega rangt. Fjölgun bæjarfulltrúa er ein ákvörðun; laun þeirra er önnur ákvörðun. Samanburður við sambærileg sveitarfélög sýnir líka litla eða enga fylgni milli fjölda bæjarfulltrúa, 7 eða 9, og heildarkostnaðar vegna launa þeirra.
Ef bæjarstjórn vill ekki auka kostnað bæjarins þrátt fyrir fjölgun bæjarfulltrúa þá einfaldlega ákveður hún það. Það myndi þýða að laun hvers bæjarfulltrúa myndu lækka um rúmlega 40 þúsund krónur á mánuði; færu úr 185 þúsund í 143, en væru samt prýðileg í samanburði við önnur sambærileg sveitarfélög eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Og ég hef ákveðið að láta reyna á þetta. Fjölgun bæjarfulltrúa tekur gildi eftir sveitarstjórnarkosningar 2022 og mun ég leggja til við gerð fjárhagsáætlunar fyrir það ár, að lækka laun bæjarfulltrúa til að mæta kostnaði við fjölgun þeirra. Fjölgunin mun því ekki leiða til neins kostnaðarauka fyrir Vestmannaeyjabæ, samþykki bæjarstjórn tillöguna. Miðað við málflutning minnihlutans núna hlýt ég að geta treyst á stuðning hans við þessa tillögu.
Niðurstaðan er þessi: fjölgun bæjarfulltrúa eykur lýðræðið með því að gefa fleiri framboðum tækifæri til að gera sig gildandi og minnkar líkurnar á að hægt sé að ná meirihluta í bæjarstjórn með minnihluta atkvæða. Fjölgunin mun ekki hafa neinn viðbótarkostnað í för með sér fyrir bæjarfélagið verði fallist á þá tillögu sem ég mun leggja fram við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Íris Róbertsdóttir
Tags
Íris Róbertsdóttir
Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.