Ekki orðið við beiðni um einstefnu
2.September'20 | 12:00Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á mánudaginn síðastliðinn var tekið fyrir á ný frestað mál um óskir íbúa við Heimagötu um að breyta götunni í einstefnugötu.
Í niðurstöðu ráðsins segir að ráðið geti að svo stöddu ekki orðið við beiðni um að gera Heimagötu að einstefnu.
Sjá einnig: Vilja að Heimagata verði gerð að einstefnugötu
Þá segir að til þess að bregðast við ábendingu um umferðarhraða samþykkir ráðið tillögu umferðarhóps um að hámarkshraði á Heimagötu, Sólhlíð, Fífilgötu, Austurvegi og Vestmannabraut að Kirkjuvegi verði lækkaður úr 50 km/klst í 30 km/klst og að settar verði tímabundnar þrengingar á Heimagötu.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.