Fráveitulagnir skemmdar
15.Ágúst'20 | 11:10Í fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni var greint frá skemmd á fráveitulögnum sem liggja frá Brattagarði út á Eiði.
Framkvæmdastjóri greindi frá að efni til bráðabirgðaviðgerða sé komið til Vestmannaeyja og stefnt sé að viðgerð á lögnunum við fyrsta tækifæri.
Framkvæmdir að hefjast á Skipalyftukanti
Á sama fundi var greint frá því að verktaki við þiljun á Skipalyftukanti hafi hafið flutning á tækjum yfir til Vestmannaeyja og von er á að verkið hefjist öðru hvoru megin við helgina. Verktaki ætlar að byrja verkið á því að reka framan við gamla þilið frá austurgafli til vesturs, austurgaflinn tekur hann síðast.
Sveinn Valgeirsson mun verða eftirlitsmaður fyrir hönd Vestmannaeyjahafnar í verkinu.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).