Tæplega 63 þúsund farþegar með Herjólfi í júlí
4.Ágúst'20 | 13:17Fara þarf aftur til ársins 2014 til að finna minni farþegaflutninga með Herjólfi í júlí mánuði.
Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. segir í samtali við Eyjar.net að með ferjunni hafi farið 62.727 farþegar í síðasta mánuði.
Til samanburðar má sjá að árið á undan voru fluttir 73.374 farþegar á milli lands og Eyja. Árið 2018 fóru 67.946 með ferjunni í júlí. Árið 2017 voru þeir 71.998, en metárið er 2016. Þá voru farþegar Herjólfs 79.102 í júlí.
Þessu tengt: Rúmlega 48 þúsund farþegar ferðuðust með Herjólfi í júní
Rétt er að geta þess að mestu munar um að í ár var engin Þjóðhátíð sem að hefur töluvert um það að segja hversu mikið færri voru á ferð milli lands og Eyja í ár. Þá hefur kórónuveirufaraldurinn einnig sitt að segja og þær hertu aðgerðir sem tóku í gildi í síðustu viku.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).