Þungar áhyggjur bæjarstjórnar vegna kjaradeilu
Ábyrgð deiluaðila er mikil, segir m.a í bókun bæjarstjórnar
10.Júlí'20 | 16:46Bæjarstjórn Vestmannaeyja tók fyrir og ræddi stöðu kjaradeilna Herjólfs ohf. og háseta, þerna og bátsmanna á Herjólfi, á fundi sínum í gær.
Í bókun sem samþykkt var samhljóða segir að bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsi þungum áhyggjum vegna kjaradeilu Herjólfs ohf. og háseta, þerna og bátsmanna á skipinu. Það er með öllu óásættanlegt að þjónusturof hafi orðið á samgöngum við Vestmannaeyjar þann 7. júlí síðastliðinn vegnu vinnustöðvunar og að allt stefni í frekari vinnustöðvanir.
Miklar framfarir hafa orðið í samgöngumálum Vestmannaeyja á undanförnum áratug með tilkomu Landeyjahafnar, yfirtöku Vestmannaeyjabæjar á rekstri samgangna á sjó og nýrrar rafknúinnar farþegaferju sérhannaðri fyrir siglingar til Landeyjahafnar.
Öllum ætti að vera ljóst að rekstraraðstæður félagsins eru afar erfiðar. Hagstæð veðurskilyrði hafa verið allt þetta ár í Landeyjahöfn og samfélagið loksins að taka við sér eftir Covid-19. Það er því sorglegt til þess að hugsa að á þessum tímapunkti séu það mannanna verk sem valda því að samgöngur við samfélagið leggist niður með tilheyrandi samfélagslegu tjóni.
Ábyrgð deiluaðila er mikil. Bæjarstjórn Vestmannaeyja leggur þunga áherslu á að deiluaðilar finni leiðir til sátta sem allra fyrst svo að ekki komi til frekari samgöngutruflana fyrir samfélagið og áfram verði veitt eins öflug þjónusta og kostur er hverju sinni, segir í bókun bæjarstjórnar.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).