Setja upp skjái sem þjóna eiga hlutverki upplýsingamiðstöðvar
26.Maí'20 | 18:15Vestmannaeyjabær gerði á dögunum samning við Ferðamálasamtök Vestmannaeyja um sérstakt markaðsátak í ferðaþjónustu skv. tilboði auglýsingastofunnar Hvíta hússins.
Tilboðið er um hönnun, gerð og framkvæmd átaksins og birtingaáætlun auglýsinga og upplýsinga um Vestmannaeyjar í hinum ýmsu miðlum, að því er segir í fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja sem fjallaði um málið í gær.
Nýjung í miðlun upplýsinga fyrir ferðamenn sem heimsækja Vestmannaeyjar
Átakið er langt komið og m.a. búið að opna nýja vefsíðu visitvestmannaeyjar.is. Þar að auki samþykkti Vestmannaeyjabær að veita Ferðamálasamtökunum styrk til kaupa á sérstökum snertiskjám sem komið verði fyrir víða um eyjuna og þjóna hlutverki upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn. Um er að ræða nýjung í miðlun upplýsinga fyrir ferðamenn sem heimsækja Vestmannaeyjar. Er hugmyndin að koma fyrir um 10 snertiskjáum á fjölfarna staði og merkja þá vel.
Geta ekki orðið við beiðni Markaðsstofu Suðurlands
Vestmannaeyjabæ barst á dögunum erindi frá Markaðsstofu Suðurlands þar sem óskað er eftir fjármagni, m.a. til markaðssetningar á landshlutanum innanlands sem viðbragð við Covid 19. Óskað er eftir stuðningi að upphæð 418.530 kr., sem skiptist í 75.000 kr. grunnframlag hvers sveitarfélags og 80 kr. framlags hvers íbúa.
Í afgreiðslu bæjarráðs segir að ráðið geti ekki orðið við beiðni Markaðsstofu Suðurlands þar sem þegar hefur verið ákveðið að ráðast í markaðsátak í samstarfi við Ferðamálasamtök Vestmannaeyja sem samþykkt var á fundi ráðsins þann 21. apríl sl.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.