Brotist inn í einar 10 geymslur
6.Maí'20 | 15:19Þann 25. apríl sl. var lögreglu tilkynnt um að brotist hafi verið inn í einar 10 geymslur í stigaganginum að Áshamri 59.
Stolið var m.a. Yato rafmagnsbílabónara, Orvis veiðivöðlum, grænum LOOP veiðijakka, Hardinga veiðistöng og bláum Len Mar sjópoka sem í voru buxur og peysa. Frá þessu er greint á facebook-síðu lögreglunnar í Vestmannaeyjum.
Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki en þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um hugsanlega gerendur eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2090 eða í gegnum vestmannaeyjar@logreglan.is.
Tags
Lögreglan
Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).