Rúmlega 30 þúsund farþegar farið með Herjólfi það sem af er ári
4.Maí'20 | 12:38Herjólfur flutti rúmlega 30 þúsund farþega milli lands og Eyja fyrstu fjóra mánuði ársins. Aldrei áður hefur Landeyjahöfn verið opin eins mikið í upphafi árs og í ár. Á móti kemur hefur kórónuveirufaraldurinn gert það að verkum að aldrei hafa eins fáir farþegar ferðast með Herjólfi í apríl.
Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs segir að í apríl í fyrra hafi 12.477 farþegar farið með ferjunni, en þá var siglt alla daga í Þorlákshöfn, 2 ferðir á dag að meðaltali. „En í ár með öllum þeim siglingum sem siglt var í Landeyjahöfn fluttum við aðeins 4.958 farþega.” segir Guðbjartur.
Áhrif Covid-19 veirunnar gætir strax og heggur í öll fyrirtæki í Eyjum
Guðbjartur vill vekja athygli á því að samanburðartölur frá fyrir árum eru e.t.v ekki samanburðarhæfar þar sem mun meira var siglt á Landeyjahöfn í ár en undanfarin ár.
Sjá einnig: Aldrei eins mikið siglt yfir háveturinn í Landeyjahöfn
„Febrúarmánuður var t.a.m. mjög góður enda nokkuð mikið siglt á Landeyjahöfn og því mikilvægt að höfnin sé nýtanleg allt árið um kring. Áhrif Covid-19 veirunnar gætir strax og heggur, ekki bara í okkur heldur, í öll fyrirtæki hér í Eyjum.
Í annan stað er Herjólfur ekki eingöngu að flytja farþega þó vissulega sé bæði gaman og gott að sjá samanburð í fjölda farþega milli tímabila þá er ferjan mikilvæg öðrum sem flytja allt sitt með henni.” segir Guðbjartur að endingu.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).