Hefðbundið skólastarf hefst á morgun
3.Maí'20 | 13:19Á morgun, mánudag hefst skólastarf á ný með eðlilegum hætti. Engar takmarkanir eru á fjölda nemenda og tekur þess vegna hefðbundin stundatafla gildi strax á mánudag.
Íþróttakennarar munu senda út plan varðandi íþróttir í maí, en áherslan mun vera á útileikfimi þó heimilt sé að hafa íþróttir og sund í íþróttahúsinu, segir í frétt á heimasíðu GRV.
Þar segir jafnframt að hafragrautur og hádegismatur verði á sínum stað en ekki verður boðið upp á ávaxtaáskrift og ekki verður hægt að kaupa mat í frímínútum á unglingastigi.
Mælst er til þess að skólar og foreldrafélög skipuleggi ekki fjölmennar samkomur, þess vegna verður uppábrot maí með öðrum hætti en vanalega og einungis bundið við nemendur. Engin skólaferðalög verða farin og líklegt að útskrift 10. bekkjar og skólaslit verði með óhefðbundnum hætti.
Einnig er mælst til þess að takmarka almennt gestakomur fullorðinna í skólana og viljum við minna sérstaklega á það að foreldrar komi ekki inn í skólana að óþörfu eða án samþykki stjórnenda.
Skólinn mun áfram huga að góðum sóttvörnum; stuðla að hreinlæti, handþvotti og sótthreinsun á þeim svæðum sem margir ganga um og fylgja viðbragðsáætlun ef grunur vaknar um smit.
Hlökkum til að taka lokasprettinn með ykkur á hefðbundinn hátt, segir í tilkynningunni frá stjórnendum GRV.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.