Herjólfur fjölgar ferðum
30.Apríl'20 | 18:13Heimsfaraldur Covid-19 hefur haft áhrif á áætlun Herjólfs ohf. undanfarnar vikur eins og samfélagið allt í Vestmannaeyjum hefur fundið fyrir.
Nú þegar aflétting samkomubanns hefst er mikilvægt að mæta eins og kostur er þörfum íbúa og lögaðila um frekari siglingatíðni. Því hefur stjórn Herjólfs ohf. ákveðið breytingar á siglingaáætlun í tveimur áföngum, sem hér segir:
Frá og með mánudeginum 4.maí verða farnar fjórar ferðir daglega frá Vestmannaeyjum, kl. 07:00 12:00, 17:00 og 22:00. Frá Landeyjahöfn 10:45, 13:15, 18:15 og 23:15.
Frá og með miðvikudeginum 13.maí verða farnar sex ferðir daglega frá Vestmannaeyjum, kl. 07:00, 09:30, 12:00, 17:00, 19:30 og 22:00. Frá Landeyjahöfn 08:15, 10:45, 13:15, 18:15, 20:45 og 23:15.
Stjórn þakkar íbúum, lögaðilum og starfsmönnum fyrir sýnda þolinmæði og skilning við mjög sérstakar og erfiðar aðstæður. Vestmannaeyjar eru náttúruperla sem hafa upp á svo margt að bjóða. Horfum bjartsýn fram á veginn og tökum fagnandi á móti öllum gestum. Megi þeir verða margir, segir í tilkynningu frá stjórn Herjólfs.
Tags
Herjólfur
Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).