Tilkynning frá umdæmislækni sóttvarna
28.Mars'20 | 13:31Eins og flestir Eyjamenn vita hafa margir einstaklingar greinst með COVID-19 smit í Vestmannaeyjum. Ýmsum sóttvarnaaðgerðum er beitt til að halda frekara smiti í skefjum.
Markmiðið með þeim er m.a. að „greina fljótt – rekja fljótt – klukka fljótt“( í sóttkví/einangrun). Fá tilfelli hafa greinst síðustu 3 daga í Eyjum, en til að skoða betur hvort óþekkt uppspretta getur verið í gangi í samfélaginu telur umdæmislæknir sóttvarna rétt á þessum tímapunkti að bjóða upp á útvíkkaða skimun í Vestmannaeyjum hjá einstaklingum með núverandi einkenni öndunarfærasýkingar.
Því býðst fólki að svara spurningalista þeim sem hér fylgir og senda inn og hluta þeirra sem svara („líklegasta hópnum“) verður boðið að koma í sýnatöku í framhaldinu. Þeim auðkennum sem boðið verður sýnataka verða birt opinberlega og þá þurfa þeir einstaklingar sem vilja og eiga viðkomandi auðkenni að hafa samband við HSU í Vestmannaeyjum (sjá nánar hvernig þegar listinn verður birtur). Framkvæmd er með þessum hætti til að tryggja vernd persónuupplýsinga.
Hægt verður að svara spurningarlistanum frá klukkan 13:00 í dag og til 22:00 í kvöld.
Hér er tengill á spurningalistann.
Bestu kveðjur,
Hjörtur Kristjánsson umdæmislæknir sóttvarna
Tags
COVID-19Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...