Skipin í landi vegna óvissu á mörkuðum og slæms veðurútlits
20.Mars'20 | 15:22Ísfisktogarar Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum, Bergey VE og Vestmannaey VE, komu til löndunar sl. mviðvikudag. Bæði skipin voru með fullfermi af stórum og fallegum ufsa.
Vestmannaey fékk aflann á Selvogsbankanum en Bergey rétt fyrir austan Eyjar. Núna liggja bæði skipin í höfn og er ástæðan tvíþætt; annars vegar slæm veðurspá fram yfir helgi og hins vegar sú óvissa sem ríkir á ferskfiskmörkuðum vegna Covid 19. Frá þessu er greint á vefsíðu Síldarvinnslunnar.
Hvað veðrið varðar þá eru tvær lægðir væntanlegar um helgina og ölduspá er afar slæm. Hvað markaðsaðstæðurnar varðar þá hefur eftirspurn eftir ferskum fiski á hefðbundnum mörkuðum hrunið. Verslanir vilja helst frosna vöru og veitingahús eru flest lokuð.
Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs-Hugins segir að langmest af fiskinum sem skipin hafa borið að landi tvær síðustu vikurnar hafi farið til vinnslu hér heima og er hann unninn í Vestmannaeyjum, Seyðisfirði, Neskaupstað, Dalvík og Akureyri. Nú er beðið og fylgst með stöðunni á mörkuðunum erlendis. Spurningin er hvernig hún verður eftir helgi. Bergur-Huginn sendi reyndar út einn lítinn gám til Englands í vikunni en það var fyrst og fremst gert til að viðhalda tengslum.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.