Bilun kom upp í hleðslubúnaði Herjólfs
13.Febrúar'20 | 14:48„Það er rétt að bilun kom upp í sleðabúnaði sem er inn í hleðsluturni sem gerir það að verkum að ekki er hægt að hlaða í augnablikinu í Eyjum.” segir Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs í samtali við Eyjar.net.
Hann segir að framleiðendur séu með málið til meðhöndlunar. „Ekki liggur fyrir hvenær viðgerð fer fram en vonir standa til að það geti verið fljótlega og þá um leið verði farið í að stilla af búnaðinn í Landeyjahöfn. Sú reynsla sem komin er á siglingu á rafmagni lofar góðu og því mikilvægt fyrir okkur að tafir á viðgerð og lokafrágangi í Landeyjahöfn dragist ekki.” segir Guðbjartur Ellert.
Engar ferðir á morgun, föstudag vegna veðurs
Í ljósi fyrirhugaðrar veðurspár og siglingar aðstæðna hafa skipstjórar Herjólfs tekið ákvörðun að fella niður ferðir föstudagsins, 14. febrúar. Ákvörðun þessi er tekin með öryggi farþega og áhafnar í huga, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Tags
Herjólfur
Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).