Ófært í Landeyjahöfn í 1,8 metra ölduhæð - þetta er ástæðan
11.Febrúar'20 | 13:01Það voru margir sem undruðust að Herjólfur hafi ekki siglt í Landeyjahöfn í morgun. Ölduhæð á dufli innan við 2 metrar og norðan átt, sem er hagstæðust til siglinga í Landeyjahöfn.
Gísli Valur Gíslason, skipstjóri á Herjólfi segir að í morgun og síðustu daga hafi aðstæður í og við Landeyjahöfn verið ansi sérstakar.
Duflið í skjóli við Vestmannaeyjar, en höfnin ekki
„Í morgun þegar ákvörðun var tekin um hvert skyldi sigla sýndi öldudufl við Landeyjar 1,9m en það er ekki nóg. Öldu og straum radar í Landeyjahöfn sem gefur okkur öldhæð í innsiglingargatinu og straum við höfnina sýndi 3,8m ölduhæð.” segir skipstjóri Herjólfs.
Gísli Valur segir að aldan í morgun og síðustu daga hafi verið að koma að Eyjum úr suð-vestri sem gerir það að verkum að duflið er í skjóli við Vestmannaeyjar, en höfnin ekki.
„Eins og sést vel á myndinni að þá er sýnd ölduhæð á dufli og raunveruleg staða við höfnina alls ekki sú sama.”
Dýpið ennþá gott í höfninni
Aðspurður segir Gísli Valur það algengt að ekki sé algert samrými á milli sýndrar ölduhæðar á dufli og ölduhæð af radar. „Þetta sjáum við t.d. mjög oft í hreinni austan átt þegar duflið sýnir háa öldu en síðan getur verið alveg slétt við höfnina.”
Hann segir dýpið ennþá gott í höfninni miðað við síðustu mælingar.
Enn má búast við að hægt verði að sigla síðdegis í dag til Landeyjahafnar?
Það er erfitt að segja. Eins og staðan er núna er ennþá ófært, þó vissulega séu aðstæður að skána.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).