Farinn að sigla fyrir rafmagni
28.Janúar'20 | 13:53Herjólfur fór í fyrsta sinn á rafhleðslu frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar í morgun.
Haft er eftir Guðbjarti Ellerti Jónssyni, framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. um rafmagnssiglinguna á fréttavef Morgunblaðsins að við fyrstu sýn líti þetta bara vel út.
Hann segir rafmagnssiglingarnar enn í „testfasa“ og að enn sé ekki er hægt að hlaða Herjólf við bryggju í Landeyjahöfn. Unnið sé að því að forrita hleðslubúnaðinn sem þar hefur verið settur upp fyrir skipið. „Góðir hlutir gerast hægt,“ segir framkvæmdastjórinn.
„Svona á næstu dögum fáum við einhverjar frekari fregnir af því hvernig þessu verkefni mun fram vinda, en allavega þessi sigling í morgun hún var ágæt, hún gefur þægilega niðurstöðu,“ segir Guðbjartur í samtali við mbl.is.
Tags
Herjólfur
Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).