Minning: Leif Magnús Grétarsson Thisland
8.Janúar'20 | 14:20Leif Magnús fæddist í Kristiansand í Noregi 22. janúar 2003. Hann lést af slysförum í Núpá í Eyjafirði 11. desember 2019.
Þú varst bara 7 ára þegar þú ráfaðir aleinn í skóginum við Mandal. Heimabæ móður þinnar í Noregi og þú leitaðir hennar. Hún hafði verið tekin frá þér, farin upp til ljóssins sem þú reyndir að finna á milli þéttra trjátoppanna. En það tók þig ekki nema 9 ár að finna ljósið og mömmu þína eftir of stutta lífsgöngu, hrakinn og blautur.
Þú sem elskaðir sveitina, túnin, heyið og heyskapinn á stórum vélum. Þú varst bara 15 ára, búinn að kaupa tvo traktora en fáir peyjar á þínum aldri geta stjórnað stærstu traktorum með heytætlur og rúlluvélar í eftirdragi. Ég man þegar ég koma fram að Mosunum í fyrra með þér, Páli Magnúsi heitnum og pabba þínum. Þú snaraðist út úr bílnum, tókst stórt skrúfjárn og tengdir milli pólana á rafgeyminum og vélin hrökk í gang. Snaraðist fimlega upp stigann, inn í risa traktorinn, kúplaðir heytætlunni inn, settir í gír og vélin æddi af stað. Þú varst mannalegur frændi.
Ég horfði hugfanginn á eftir þér, þú hélst í stýrið og leist út um afturrúðuna til að athuga hvort allt væri í lagið og gjóaðir svo augunum til Ása frænda sem var eitt bros. Rosalega vorum við montnir á þessu augnabliki. Ég af þér og þú, náttúrubarn á heimavelli lífs þíns. Ég fylgdist með þér nokkrar ferðir suður engin milli Mosa og Ystabæli sog sá sjálfan mig 50 árum fyrr, á gráum Ferguson í Steinum sem komst inn í aðra afturfelguna í traktornum sem Leif Magnús stjórnaði. Og í sumar þegar Leif og faðir hans tóku við Steinabúinu við fráfall Madda kom ég að þeim feðgum í heyskap. Grétar að raka heyi í garða og Leif Magnús rúllaði. Það stíflaðist í vélinni og minn maður sveiflaði sér út úr traktornum, lagðist undir rúlluvélina og reif úr henni heyið. Þarna var maður á ferðinni sem kunni sitt fag og sló ekki slöku við þó langt væri liði á kvöld eftir marga langa daga.
Hann var bara 16 ára en kröfurnar sem gerðar voru til hans voru kröfur á fullorðinn mann. Það var óraunhæft, en hann var ákveðinn í að verða bóndi, átti tvo traktora og var klár í slaginn. Var alvöru peyi sem fór sína leið og ætlaði að meika það í sveitinni. En Leif átti ekki eins góða samleið með skólabókunum og sveitarlífinu. Maður þarf ekki að kunna dönsku eða samfélagsfræði til að geta unnið á stærsta traktórnum í sveitinni með rúlluvél í eftirdragi, eða aleinn að bera skít á tún fram á nótt. Gera við, vera maður og halda öllu gangandi En það er ekki prófað í skólanum hvað maður kann í lífinu. Ekki frekar en í þinginu. Þá hefði minn maður dúxað alla grunnskóla.
Grunnskólakerfið er ekki fyrir nemendur sem kunna meira á lífið en kennslubækurnar. Samt ætlaði Leif að koma heim og klára námið, hann var tilbúinn þegar hann tók þá ákvörðun sjálfur. Ég heyrði í honum rétt fyrir slysið og við ætluðum að hittast í Eyjum um jólin. Hann var kokhraustur og ætlaði að taka bílpróf í janúar og kaupa sér Mustang. Leif bar sig vel í símtalinu, en svo brast röddin. Hann var bara barn, blessaður litli frændi minn, óharðnaður og bjó að þyngri reynlsu en barn á að bera. Ég sagði honum ekki frá því að við hinn endann á línunni láku líka tárin mín. Við kvöddumst sem vinir með tárvot augu. Síðasta kveðjan var blaut og köld eins og Leif þegar hann kvaddi þennan heim á leið inn í ljósið á milli trjátoppanna í Mandal.
Votta Grétari Má, Óskari bróður mínum og fjölskyldunni samúð.
Ásmundur Friðriksson.
Útför Leif Magnúsar fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 10. janúar 2020 kl. 15.00.
Höfundur: Ásmundur Friðriksson.
F. í Reykjavík 21. jan. 1956. For.: Friðrik Ásmundsson (f. 26. nóv. 1934) skipstjóri og skólastjóri og Valgerður Erla Óskarsdóttir (f. 24. maí 1937). M. Sigríður Magnúsdóttir (f. 26. jan. 1958) matráður. For.: Magnús G. Jensson og Kristín Guðríður Höbbý Sveinbjörnsdóttir. Börn: Ása Hrönn (1982), Erla (1984), Magnús Karl (1991). Sonur Ásmundar og Sigurlaugar Sigurpálsdóttur: Friðrik Elís (1975). Stjúpdóttir, dóttir Sigríðar: María Höbbý Sæmundsdóttir (1977).
Gagnfræðapróf Skógaskóla 1973.
Stundaði netagerð og sjómennsku 1970-1972. Vann við hreinsun Heimaeyjar sumarið 1973. Verkstjóri hjá Viðlagasjóði við hreinsun og endurreisn og uppgræðslu Heimaeyjar 1974-1978. Framleiðslu- og yfirverkstjóri hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja 1978-1986. Sjálfstætt starfandi blaðamaður 1980-2003. Framkvæmdastjóri Samkomuhúss Vestmannaeyja 1986. Rak fiskvinnslufyrirtækið Kútmagakot ehf. 1988-2003. Framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Keflavíkur 2004. Verkefnastjóri Ljósanætur 2006. Verkefnastjóri í atvinnu- og menningarmálum hjá Reykjanesbæ 2008. Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs 2009-2012.
Í þjóðhátíðarnefndum Vestmannaeyja 1974-1996. Formaður handknattleiksdeildar Þórs 1974-1978. Formaður Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna, 1981-1984. Í stjórn SUS 1983-1987. Í flokksráði Sjálfstæðisflokksins og í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Eyjum 1982-1986.Formaður íþrótta- og tómstundaráðs Vestmannaeyja 1982-1986. Formaður ÍBV 1994-1999. Formaður knattspyrnudeildar ÍBV 1999-2002. Stofnandi og formaður hollvinasamtaka Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði, NLFÍ, 2005-2011. Í stjórn Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ 2007-2008. Stofnandi Lista- og menningarfélagsins í Garði 2009. Stjórnandi listaverkefnisins Ferskir vindar í Garði 2010. Formaður Sjálfstæðisfélagsins í Garði frá 2012.
Alþm. Suðurk. síðan 2013 (Sjálfstæðisflokkur).
Atvinnuveganefnd 2013-, velferðarnefnd 2013-.
Ritstjóri: Fylkir, málgagn sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum (1986-1988).
Minning: Ingimar Ágúst Guðmarsson
16.Janúar'21 | 11:51Minning: Páll Árnason
15.Janúar'21 | 10:15Á að loka framtíðina inni?
15.Desember'20 | 07:45Kjánahrollur
11.Nóvember'20 | 09:15Minning: Kristinn Guðni Ragnarsson
4.Nóvember'20 | 06:50Gerum meira en minna
7.September'20 | 14:48Tafaleiðir framkvæmda og stjórnun í þágu fjöldans
22.Maí'20 | 09:15Efnahagsaðgerðir í þágu Suðurlands
27.Apríl'20 | 11:10Sjálfbærni Íslands með garðyrkjuafurðir og olíu
24.Febrúar'20 | 08:53Erum á góðri leið, en viljum gera betur
31.Desember'19 | 11:50
Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).