Ánægja með Safnahelgi
21.Nóvember'19 | 06:57Glæsilegri Safnahelgi í Vestmannaeyjum lauk á sunnudaginn. Bæjarráð Vestmannaeyja fjallaði um hátíðina og segir í fundargerð ráðsins að óhætt sé að fullyrða að vel hafi tekist til.
Fjöldi fjölbreyttra viðburða var á dagskránni í ár sem stóð yfir í 11 daga, frá 7. til 17. nóvember. Enn eru dagskrárliðir um næstu tvær helgar sem tengjast 100 ára kaupstaðarafmælinu og Safnahelginni.
Bæjarráð vill senda öllum þeim sem komu að skipulagningu og þátttöku Safnahelgarinnar sínar bestu þakkir og hamingjuóskir með frábæra og metnaðarfulla dagskrá. Þá eru bæjarbúar hvattir til að sækja þá viðburði sem framundan eru.

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-