Fjölhæfur Daníel Franz í Einarsstofu á morgun
15.Nóvember'19 | 15:54Á morgun, laugardag kynna Sigurgeir Jónsson og Sunna Einarsdóttir bók sína, Munaðarlausa stúlkan sem er eitt af þessum gömlu góðu íslensku ævintýrum. Kynningin verður í Einarsstofu klukkan 11.00.
Þar ætlar Daníel Franz Davíðsson að syngja nokkur lög við eigin gítarundirleik. Við lögðum fyrir hann nokkrar spurningar:
Nafn: Daníel Franz Davíðsson.
Hvenær fæddur: 5. október 2004.
Fjölskylda: Anna Hulda Ingadóttir er mamma mín, Davíð Þór Hallgrímsson er pabbi minn. Svo koma þeir Gabríel Ari og Rafael Bóas Davíðssynir.
Uppáhaldsfag í skóla: Verð ég ekki að segja stærðfræði ef Berglind Þórðar sér þetta.
Uppháhalds kennarinn: Hörð barátta milli Berglindar og Evelyn.
Stundar þú íþróttir: Já, heldur betur. Æfi handbolta, golf og fótbolta. Síðan æfi ég á túbu, æfi söng, er í lúðrasveit, í hljómsveit (Eyjasynir) og svo að sjálfsögðu leikhúsið.
Hvað lestu helst: Hef verið mjööög latur að lesa undanfarið. Segjum Andrés Önd bara.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: 911 eru seigir
Besta bíómynd í heimi: How the Grinch stole the Christmas (2004).
Uppáhalds síða á netinu: Vísir.is eða Mbl.is.
Hvaða tónlist hlustar þú mest á: Gamla góða íslenska tónlist. Þjóðhátíðarlög, Sálina, Bubba o. fl.
Hvenær byrjaðir þú að spila á gítar og syngja: Byrjaði að æfa á gítar síðasta haust og æfði í eina önn. Hef svo bara kennt mér sjálfur síðan. Hef sungið allt mitt líf.
Hver er besti söngvari í heimi í dag: Verð að segja Stefán Hilmarsson.
Hver er besti tónlistarmaðurinn: Bubbi Morthens er lang besti laga- og textasmiður á Íslandi.
Hver er besta hljómsveitin: Á Íslandi er það Sálin. En verð líka að skjóta inn Arcede fire svo pabbi verði ekki brjál.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór: Vonandi atvinnuleikari.
Tags
Safnahelgin
Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).