Landeyjahöfn:
Stefnt að því að mæla dýpið í fyrramálið
12.Nóvember'19 | 18:32Stefnt er að því að mæla dýpið í Landeyjahöfn í fyrramálið um leið og færi gefst. Því siglir Herjólfur III til Þorlákshafnar a.m.k fyrri ferð morgundagsins 13. nóvember, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Brottför er frá Vestmannaeyjum kl: 07:00 og frá Þorlákshöfn kl: 10:45. Þeir farþegar sem áttu bókað þessar tímasetningar til/frá Landeyjahöfn hafa verið færðir sjálfkrafa milli hafna.
Ef farþegar eiga farartæki í Landeyjahöfn, þarf að láta vita af sér í afgreiðslu Herjólfs í Vestmannaeyjum svo við getum útvegað skutl milli hafna.
Hvað varðar siglingar seinni part morgundagsins, þá verður gefin út tilkynning eftir hádegi á morgun, á miðlum Herjólfs.
Tags
Herjólfur
Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%