Ökklabrotnaði á björgunaræfingu
17.September'19 | 11:19Í gær hafði nýi Herjólfur viðkomu í Hafnarfjarðarhöfn á leið sinni til Akureyrar. Þar var björgunarbúnaður prófaður auk þess sem bætt var í björgunarbátana neyðarsendum.
Þá var haldin rýmingaræfing auk þess sem æfingin "skipið yfirgefið" var æfð.
Ekki vildi betur til en svo að einn starfsmaður Vegagerðarinnar lenti í óhappi við æfingarnar. Þetta staðfestir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar í samtali við Eyjar.net. Hann segir að starfsmaður stofnunarinnar hafi ökklabrotnað á björgunaræfingu.
Spurður nánar um hvernig þetta gerðist segir hann að það hafi orðið á æfingunni við að fara úr skipinu í björgunarbát. G. Pétur segir að þetta flokkist sem vinnuslys.

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-