Vinna í millidekki á nýrri Vestmannaey hafin
15.Ágúst'19 | 14:08Hin nýja Vestmannaey hélt norður til Akureyrar hinn 6. ágúst sl. og munu þar starfsmenn Slippsins ganga frá millidekki skipsins.
Áður höfðu starfsmenn Vélsmiðjunnar Þórs í Vestmannaeyjum gengið frá lestarfæribandinu um borð. Millidekkið verður um þriðjungi stærra og að ýmsu leyti fullkomnara en var í gömlu Vestmannaey (núverandi Smáey).
Þar verða meðal annars tveir stærðarflokkarar og krapakerfi frá KAPP. Þá er lögð áhersla á að vinnuaðstaða á dekkinu verði öll hin besta og líkamlegt álag á áhöfnina í lágmarki.
Gert er ráð fyrir að hin nýja Vestmannaey geti hafið veiðar um miðjan september, að því er segir í frétt á vef Síldarvinnslunnar.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).