Að duga eða drepast
- Lífshlaup Bjarna Jónassonar
15.Ágúst'19 | 06:49Út er komin bókin "Að duga eða drepast". Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.
Bjarni hefur marga fjöruna sopið, jafnvel í orðsins fyllstu merkingu, þegar hann synti til lands við Ingólfshöfða til að hitta konu sína í Öræfum.
Hann var sjómaður, vélstjóri og skipstjóri í tíu ár, verkamaður, tækjastjóri og verkstjóri í fiskvinnslu í önnur tíu og svo stofnandi Eyjaflugs og flugmaður í tíu ár. Síðan framkvæmdastjóri hjá Heimaey kertaverksmiðju og stofnandi ÚV FM104.
Ekki hefur Bjarni alltaf farið troðnar slóðir, en í bók hans kemur líka fram saga venjulegs fólks í sjávarþorpi og saga þjóðarinnar á umbrotatímum á sjó og í landi. Hann minnist á sænsku bátana sem lögðust á hliðina og sukku og lýsir eldgosi á Heimaey og flugrekstri í óðaverðbólgu.
Einnig segir hann hreinskilnislega frá fráfalli sona, sigrum og ósigrum, mönnum og málefnum. Mikið og margt merkilegra mynda er í bókinni.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).