Lundarallið í Eyjum:
Hæsta mæling frá upphafi
5.Ágúst'19 | 05:53„Lundarall II 2019, lokaskýrsla með stórfrétt.” segir í upphafi færslu á facebook-síðu Náttúrustofu Suðurlands, en seinna lundarallinu lauk rétt fyrir Þjóðhátíð.
Þar kemur fram að í Vestmannaeyjum sé ábúð 78%, varpárgangur 76%, viðkoma 60%. 670.000 pysjur á lífi. Brottflugi seinkar um viku plús, en þær hafa ekki vaxið hratt segir jafnframt í færslunni. Þá segir að þetta sé hæsta mæling Náttúrustofunnar frá upphafi.
Af öðrum stöðum eru tölurnar svona: Vigur: Ábúð 82% (egg/varpholu), varpárangur 95% (fleygir ungar/egg)! Viðkoma 78% (fleygir ungar/varpholu). Grímsey á Steingrímsfirði: Ábúð 82%, varpárangur 77%, viðkoma 63%.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).