Vildu fá formennsku í framkvæmda- og hafnarráði
23.Júlí'19 | 13:48Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja fyrr í mánuðinum var Arnar Richardsson skipaður aðalmaður í framkvæmda- og hafnarráði í stað Guðmundar Ásgeirssonar. Þá var einnig kosinn formaður og varaformaður framkvæmda- og hafnarráðs.
Áður en að kosningunni kom var lögð fram tillaga frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Í henni segir að þar sem fyrir liggi að breyta eigi um formennsku í ráði sveitarfélagsins leggja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn hlaut mest fylgi allra flokka í síðustu kosningum að honum verði veitt formennska í framkvæmda- og hafnarráði. Slík ráðstöfun myndi tryggja aukið lýðræði, bætt samstarf og aukna valddreifingu við stjórn Vestmannaeyjabæjar en slíkt fyrirkomulag þekkist t.d. í störfum Alþingis þar sem stjórnarandstöðuflokkar fengu við upphaf þings formennsku í 3 nefndum. Því leggja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til við bæjarstjórn Vestmannaeyja að Sigursveinn Þórðarson verði formaður framkvæmda- og hafnarráðs.
Tillagan var felld með fjórum atkvæðum H- og E-lista gegn þremur atkvæðum D-lista.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu og lagði fram eftirfarandi bókun: Bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins þykir miður að meirihlutinn felli tillögu Sjálfstæðisflokksins í viðleitni sinni um að auka samstarf, auka lýðræði og auka valddreifingu og hunsi þannig stærsta stjórnmálaaflið i sveitarfélaginu og þar með vilja kjósenda. Það er ekki óeðlilegt í lýðræðisríki að sá stjórnmálaflokkur sem mest fylgi fær í lýðræðislegum kosningum, fái formennsku í nefndum. Sjálfstæðisflokkur lýsir sig ávallt reiðubúinn til að axla þá ábyrgð að taka formennsku í ráði ef til hans verður leitað.
Í kjölfarið var Kristín Hartmannsdóttir kosin formaður með fjórum atkvæðum H- og E-lista gegn þremur atkvæðum D-lista. Stefán Jónasson var kosinn með varaformaður með sjö samhljóða atkvæðum.
Tags
Bæjarstjórn
Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-