Segir þolinmæðina á þrotum
18.Júlí'19 | 18:44„Ég er ósammála því að það liggi ekki sérstaklega á þessu. Staðan í Vestmannaeyjum er þannig að hingað er komið nýtt skip, tilbúið til siglinga, og það sem stendur út af er að skipið getur ekki lagst að bryggjumannvirkjum í Vestmannaeyjum,“ segir Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs Vestmannaeyja.
En fyrr í dag sagði upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar við mbl.is að ekki væri neinn „gríðarlegur þrýstingur“ á að hefja siglingar með nýju ferjunni.
„Ég myndi segja að það væri kominn þrýstingur á að við getum farið að taka í notkun nýtt skip, sem hefur legið ónotað við bryggju síðan í júní, fyrir utan tafirnar á afhendingunni á sínum tíma,“ segir Njáll í samtali við mbl.is.
„Satt best að segja er þolinmæðin kannski svolítið þrotin hvað þetta varðar, að bryggjumannvirkin í Vestmannaeyjum séu að stoppa þetta, sem ég hefði haldið að menn hefðu getað séð fyrir miklu, miklu fyrr.“
„Allt tal um það að það liggi ekki þannig séð á þessu og einhver rólegheit hvað það varðar, ég deili þeirri skoðun ekki með G. Pétri.“ er haft eftir Njáli á mbl.is.
- Þessu tengt: Vandamálið snýr að fenderum á bryggjunni

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).