Starf forstjóra HSU auglýst laust til umsóknar
31.Maí'19 | 10:44Starf forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands hefur nú verið auglýst laust til umsóknar, en allt frá sameiningu heilbrigðisstofnana á Suðurlandi hefur Herdís Gunnardóttir gengt stöðu forstjóra.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) var stofnuð 1. október 2014, í víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins, við sameiningu. Það er Heilbrigðisráðuneytið sem auglýsir embætti forstjóra laust til umsóknar. En heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. október 2019.
Í auglýsingunni segir m.a að heilbrigðisstofnunin veiti almenna heilbrigðisþjónustu í Heilbrigðisumdæmi Suðurlands sem nær yfir sveitarfélagið Ölfus, Hveragerðisbæ, Grímsnes- og Grafningshrepp, Bláskógabyggð, Hrunamannahrepp, Sveitarfélagið Árborg, Flóahrepp, Ásahrepp, Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshrepp, Skaftárhrepp, Sveitarfélagið Hornafjörð og Vestmannaeyjabæ. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Um er að ræða stofnun sem fær um 4 milljarða af fjárlögum ríkisins og þar er starfa um 500 manns.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.