Uppskeruhátíð handknattleiksdeildar ÍBV:
Arna Sif og Fannar Þór valin best
18.Maí'19 | 01:34Í kvöld var lokahóf handknattleiksdeildar ÍBV haldið í Golfskálanum. Að venju voru leikmenn sem skarað hafa framúr heiðraðir. En leikmenn og þjálfarar kusu um það hverjir fengu verðlaunin í flestum tilfellum.
Þá voru þær Kristrún Hlynsdóttir og Ester Óskarsdóttir heiðraðar fyrir fjölda leikja fyrir ÍBV. Kristrún með 166 leiki og 203 mörk og Ester með 268 leiki og 1149 mörk.
Hér fyrir neðan má sjá sjá hvaða leikmenn voru heiðraðir sérstaklega fyrir veturinn.
3. fl kvenna mestu framfarir: Helga Sigrún Svansdóttir
3 fl kvenna efnilegasti leikmaður: Bríet Ómarsdóttir
3. fl kvenna ÍBVari - Erika Ýr Ómarsdóttir
3. fl kvenna besti leikmaðurinn: Andrea Gunlaugsdóttir
3. fl karla mestu framfarir: Gunnlaugur Hróðmar
3. fl karla Efnilegasti leikmaður: Arnór Viðarsson
3. fl karla IBVari - Birgir Orrason
3. fl karla besti leikmaður: Ívar Logi Styrmison
Efnilegasti leikmaður ÍBV karla = Fréttabikarinn: Gabríel Martínez Róbertsson
Mfl karla mestu framfarir: Dagur Arnarsson
Mfl karla IBVari - Elliði Snær Viðarsson
Mfl karla besti leikmaður: Fannar Þór Friðgeirsson
Mfl kvenna efnilegasti leikmaður=Fréttabikarinn: Harpa Valey Gylfadóttir
Mfl kvenna mestu framfarir: Sunna Jónsdóttir
Mfl kvenna IBVari - Sandra Dís Sigurðardóttir
Mfl kvenna besti leikmaður: Arna Sif Pálsdóttir
ÍBV langar að þakka öllum þeim sem komu að starfinu hjá okkur í vetur á einn eða annann hát. Einnig viljum við nota tækifærið og þakka okkar frábæru stuðningsmönnum fyrir ykkar stuðning í vetur, segir í færslu á facebook-síðu handknattleiksdeildar.
Tags
ÍBVMá bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.