Biðin á enda - Landeyjahöfn opnar
1.Maí'19 | 22:09Biðin er senn á enda. Á morgun mun Herjólfur sigla í fyrsta sinn á þessu ári til Landeyjahafnar. Síðustu daga hefur verið unnið af kappi við að dæla sandi úr höfninni og er hún nú orðin fær fyrir Herjólf.
Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. segir í samtali við Eyjar.net að siglt verði til Landeyjahafnar í fyrramálið. „Það verður siglt samkvæmt áætlun. Reyndar er lágmarksdýpi á svæðinu þannig að við biðjum farþega að fylgjast vel með tilkynningum.”
Áfram verður unnið við dýpkun á svæðinu og ölduspáin er hagstæð, segir Guðbjartur Ellert.
Áætlun Herjólfs í Landeyjahöfn má sjá hér að neðan.
Almenn áætlun:
Vestmannaeyjar brottför: | Landeyjahöfn brottför: |
---|---|
07:00 - Alla daga | 08:15 - Alla daga |
09:30 - Alla daga | 10:45 - Alla daga |
12:00 - Alla daga | 13:15 - Alla daga |
14:30 - Alla daga | 15:45 - Alla daga |
17:00 - Alla daga | 18:15 - Alla daga |
19:30 - Alla daga | 20:45 - Alla daga |
22:00 - Alla daga | 23:15 - Alla daga |

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).