Áætlun Herjólfs til Þorlákshafnar
- áætlun ferjunnar breyttist í morgun
30.Mars'19 | 11:06Enn siglir Herjólfur til Þorlákshafnar, þrátt fyrir að mars-mánuður sé á enda runninn. Herjólfur ohf. tók við rekstri ferjunnar í dag og breytist þá áætlun Herjólfs. Samkvæmt heimildum Eyjar.net stendur til að mæla dýpið í Landeyjahöfn í dag. Áætlun Herjólfs í Þorlákshöfn er sem hér segir:
Ef ófært er til Landeyjahafnar og Herjólfur siglir til Þorlákshafnar þá færast sjálfkrafa eftirfarandi ferðir:
- Ferðirnar Vestmannaeyjar - Landeyjahöfn 07:00 og 14:30 færast sjálfkrafa í ferðir Vestmannaeyjar - Þorlákshöfn 07:00 og 15:30.
- Ferðirnar Landeyjahöfn - Vestmannaeyjar 10:45 og 18:15 færast sjálfkrafa í ferðir Þorlákshöfn - Vestmannaeyjar 10:45 og 19:15.
- Aðrar ferðir færast ekki, farþegar sem eiga bókað þar þurfa að hafa samband við afgreiðslu í síma 481-2800 og færa sig í næstu lausu ferð eða fá endurgreitt.
Ekki er sjálfgefið að pláss sé fyrir alla farþega og ökutæki niðurfelldrar ferðar í næstu mögulegu ferð, þar sem hluti af farþegarými sem og pláss á bíladekki kann að hafa selst fyrirfram.
Vinsamlegast athugið að áætlunin getur tekið breytingum, en þær eru að jafnaði auglýstar í fjölmiðlum, heimasíðu og á Facebook síðu Herjólfs.
Nánari upplýsingar um áætlun og verðskrá Herjólfs má finna hér.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.