Aðstæður barnshafandi kvenna á landsbyggðinni skoðaðar
18.Janúar'19 | 17:59Félags- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra kynntu á ríkisstjórnarfundi í morgun áform um skoða í sameiningu breytingar til að styðja betur við barnshafandi konur á landsbyggðinni og fjölskyldur þeirra.
Skipaður verður starfshópur sem á að móta og leggja fram tillögur að úrbótum hvort sem er innan fæðingarorlofskerfisins eða með öðrum hætti. Starfshópurinn mun fara yfir aðstæður þessara kvenna með tilliti til staðsetningar fæðingarþjónustu á landsvísu en margar þeirra þurfa að dveljast fjarri heimabyggð, með tilheyrandi tilkosntaði, í nokkurn tíma til að hafa öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á meðgöngu og eftir fæðingu.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segir þetta mikilvægt mál og fagnar því að ráðherrarnir taki höndum saman um að leita leiða til úrbóta og jafna aðstæður fólks hvað þetta snertir.
Óskað verður eftir tilnefningum í þessa vinnu á næstu dögum en gert er ráð fyrir tveir formenn leiði hópinn, annar frá félags og barnamálaráðherra og hinn frá heilbrigðisráðherra, segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.