Nýr Herjólfur undir kostnaðaráætlun
13.Janúar'19 | 12:53Ný Vestmannaeyjaferja mun kosta 4,4 milljarða króna en það er undir kostnaðaráætlun. Upphaflega var reiknað með að 4,8 milljarðar færu í verkefnið.
Ákveðið var að rafvæða ferjuna í febrúar á síðasta ári en það var eftir að smíði hófst. Samkvæmt Vegagerðinni er kostnaður við rafvæðinguna um 800 milljónir króna en sá kostnaður var ekki inn í áætlun. Þannig hefði heildarkostnaðurinn orðið um 3,6 milljarðar ef ekki hefði verið ráðist í rafvæðinguna og líklega lægri, segir í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn Kjarnans.
Ákveðið var að rafvæða ferjuna í febrúar á síðasta ári en það var eftir að smíði hófst. Samkvæmt Vegagerðinni er kostnaður við rafvæðinguna um 800 milljónir króna en sá kostnaður var ekki inn í áætlun. Þannig hefði heildarkostnaðurinn orðið um 3,6 milljarðar ef ekki hefði verið ráðist í rafvæðinguna og líklega lægri, segir í svarinu.
Þessu tengt: Margvíslegar ástæður fyrir seinkun afhendingar
Í svari Vegagerðarinnar segir jafnframt að ferjan sé umhverfisvæn ferja og að dregið verði úr útblæstri sem svarar til 3000 bíla – samdráttur í kolefnisútblæstri nemi yfir 2000 tonnum af olíu miðað við núverandi ferju.
Nánar má lesa um málið á vef Kjarnans.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).