Lengja opnunartíma sundlaugar næsta sumar
28.Nóvember'18 | 07:34Ósk hefur komið upp frá íbúum og aðilum innan ferðaþjónustu um að auka opnunartíma sundlaugar um helgar frá lok maí til byrjun september. Um málið var fjallað á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs nú í vikunni.
Um er að ræða 15 helgar og lagt er til að opnunartíminn verði frá kl. 09:00 til 21:00 í stað 09:00 til 18:00. Ráðið vill koma til móts við bætta þjónustu í sundlaug bæjarins og samþykkir viðbótar opnun sundlaugarinnar með fyrirvara um aukna fjárveitingu og vísar málinu áfram til fjárhagsáætlunargerðar 2019, segir í bókun fjölskyldu- og tómstundaráðs.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.