Telur að afsláttur til Eyjamanna feli ekki í sér mismunun
29.Október'18 | 16:18Framkvæmdastjóri Herjólfs ohf segir að ekki sé verið að mismuna fólki eftir búsetu með því að bjóða Vestmannaeyingum helmingsafslátt í Herjólf. Hann segir að verið sé að færa kerfið úr fyrirframgreiddum afsláttarkortum yfir í stakar ferðir.
Stjórn Herjólfs ohf. samþykkti í lok síðustu viku siglingaáætlun og gjaldskrá fyrir félagið sem á að taka gildi 30. mars næstkomandi þegar nýr Herjólfur hefur siglingar milli lands og Eyja.
Tillögurnar gera meðal annars ráð fyrir því að fólk með lögheimili í Vestmannaeyjum fái helmingsafslátt í Herjólf. Þannig munu Eyjamenn borga 800 krónur fyrir staka ferð en aðrir 1.600. Ökumenn fólksbíla með lögheimili í Vestmannaeyjum verða rukkaðir um 1.500 krónur en aðrir þurfa að borga 3.000 krónur.
Guðbjartur Ellert Jónsson framkvæmdastjóri Herjólfs ofh telur þetta sé í samræmi við lög.
„Menn mega ekki gleyma því að í gildi eru afsláttarkort sem að Vestmannaeyingar sem og aðrir hafa getað keypt. Með þessu er einfaldlega verið að færa þetta úr fyrirframgreiddum afsláttarkortum yfir í stakar ferðir með afslætti,“ segir Guðbjartur, í samtali við Vísi.is.
Guðbjartur segir að ekki sé verið að mismuna fólki eftir búsetu.
„Við teljum svo ekki vera. Þetta er samgöngukerfi sem þarf að fullnægja þörfum samfélagsins í Vestmannaeyjum. Þeir sem eru að nota þetta að öllu jöfnu og hvað mest eru íbúar í Vestmannaeyjum,“ segir Guðbjartur.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).