Fjöldi farþega tvöfaldast á fimm árum
- auknar tekjur af skemmtiferðaskipum
19.September'18 | 06:49Farþegafjöldi skemmtiferðaskipa hefur tvöfaldast á fimm árum ef skoðaðar eru tölur frá Vestmannaeyjahöfn. Tekjur Vestmannaeyjahafnar hafa aukist svo um munar vegna þessarar fjölgunar.
Árið 2013 voru komur skemmtiferðaskipa aðeins 15 talsins, en voru í fyrra ríflega þrisvar sinnum fleiri og hefur fjöldi farþega ríflega tvöfaldast á þessum 5 árum. Tekjur vegna þessara skipa á tímabilinu hafa vaxið um rúmar 20 milljónir, samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjahöfn.
Samantekt skemmtiferðaskip 2013-2017 | |||
Ár | Fjöldi skipa | Farþegar | Tekjur |
2017 | 50 | 12,138 | 28,819,000 |
2016 | 40 | 11,374 | 25,468,000 |
2015 | 30 | 9,038 | 17,721,000 |
2014 | 31 | 8,181 | 15,495,000 |
2013 | 15 | 5,928 | 8,200,000 |
Tags
Vestmannaeyjahöfn
Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).