Sísí Lára á leið til Noregs?
14.Ágúst'18 | 16:48Íslenska landsliðskonan Sigríður Lára Garðarsdóttir er mögulega á leið til Lilleström á Noregi. Sísí Lára, sem hefur allan sinn feril spilað með ÍBV, hélt í morgun til Noregs til að skoða aðstæður hjá félaginu.
Lilleström er í langefsta sæti í norsku úrvalsdeildinni en liðið hefur unnið alla fjórtán leiki sína á tímabilinu. Lilleström er með tólf stiga forskot á Klepp sem er í 2. sætinu þegar átta umferðir eru eftir, segir í frétt vefsíðunnar fotbolti.net.
„Hún er að skoða aðstæður og það er kominn viss grunnur í viðræðum. Þetta getur samt ennþá farið í báðar áttir," sagði Jón Óli Daníelsson, íþróttafulltrúi ÍBV, við Fótbolta.net í dag.
Sísí hefur verið burðarás í liði ÍBV í Pepsi-deildinni undanfarin ár en hún er á sínu tíunda tímabili í meistaraflokki þrátt fyrir að vera einungis 24 ára. Sísí á einnig að baki þrettán landsleiki en hún var í liðinu sem fór á EM í fyrra, segir ennfremur í frétt Fótbolta.net.
Tags
ÍBV
Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-