Nýr Herjólfur:
Kemur þegar veður eru válynd
31.Júlí'18 | 06:51„Þegar lagt var af stað í þetta verkefni var mikil áhersla lögð á að ferjan myndi byrja að sigla í apríl eða maí þannig að áhöfnin og sérstaklega skipstjórarnir myndu læra á skipið að sumri.“
Þetta segir Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar, í Morgunblaðinu í dag. Vísar hann í máli sínu til þess að enn er óljóst hvenær nýr Herjólfur byrjar áætlunarsiglingar á milli lands og Vestmannaeyja, en eins og greint hefur verið frá í blaðinu hefur pólska skipasmíðastöðin Crist S.A. beðið um frest á afhendingu ferjunnar.
„Nú er svo komið að skipið mun ekki byrja áætlunarsiglingar fyrr en í nóvember ef áætlanir ganga eftir, þegar veður eru válynd,“ segir Sigurður Áss, en það veldur auknu álagi á áhöfnina.
Sjá einnig: Frekari töf á nýsmíði Herjólfs
Tags
Herjólfur
Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).