Ráðið í störf á nýjum Herjólfi
- skipstjóri og yfirvélstjóri ráðnir
13.Júlí'18 | 13:47Í dag var gengið frá ráðningu fyrsta skipstjóra á nýjan Herjólf. Á grundvelli ráðningarferlis og ráðgjafar Capacent, sem sá um ferlið, var Ívar Torfason ráðinn í starfið.
Mun Ívar fara til Póllands um miðjan ágúst til að fylgjast með lokafrágangi smíði nýja Herjólfs og sigla honum heim til Eyja þegar að hann verður afhentur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Herjólfs ohf.
Um er að ræða fyrstu ráðningu skipstjóra en gert er ráð fyrir að ráða tvo skipstjóra til viðbótar á næstu dögum enda ráðgert að þrískipta áhöfn þurfi á skipið vegna fjölgunar ferða og keyrslu skipsins allt að 18 – 19 tíma á dag.
Þá var í dag einnig gengið frá ráðningu Svans Gunnsteinssonar í starf eins þriggja yfirvélstjóra, sem gert er ráð fyrir að ráðnir verði á skipið. Ráðning Svans er einnig gerð á grundvelli ráðningarferlis og ráðgjafar Capacent. Ráðgert er að Svanur fari til Póllands á næstu vikum til að fylgjast með lokafrágangi á smíði Herjólfs.
Vonast er til að á næstu dögum verði gengið frá ráðningum fleiri yfirvélstjóra, segir í tilkynningu frá stjórn Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).