Hvítu tjöldin á Þjóðhátíð:
Opnar fyrir skráningu stæða í næstu viku
3.Júlí'18 | 13:37Í ár verður nýtt fyrirkomulag reynt við úthlutun tjaldstæða fyrir hvítu tjöldin á Þjóðhátíð. Nú hefur verið gefnar út leiðbeiningar og hvernig fólk eigi að snúa sér, óski það eftir stæði í dalnum.
Á vefsvæði ÍBV-íþróttafélags segir að sækja þurfi um “lóð” á www.dalurinn.is, skrá sig þar inn og fylla út upplýsingar sem beðið er um. Mikilvægt er að allir reitir sé fylltir út svo að umsókn sé gild. Nauðsynlegt er að vita nákvæma breidd á tjaldinu áður en umsókn er fyllt út. Hér að neðan eru dagsetningar sem verðandi tjaldbúar í Herjólfsdal ættu að hafa hugfastar.
10. júlí 2018 kl. 10:00
Opnað verður fyrir skráningu á www.dalurinn.is, það þarf að skrá sig inn í kerfið líkt og þegar miðar í Dalinn eru keyptir. Send verður staðfesting á skráningu með tölvupósti.
24. júlí 2018 kl. 10:00
Síðasti dagur skráningar á www.dalurinn.is.
26. – 28. júlí 2018
Staðfesta umsókn um lóð. Það er gríðarlega mikilvægt að staðfesta umsóknir á www.dalurinn.is undir mínar pantanir.
30. júlí 2018
Mánudaginn 30. júlí 2018 verða birtar nákvæmar staðsetningar á lóðum til allra þeirra sem sóttu um á réttan hátt í gegnum dalurinn.is. Þessar upplýsingar munu vera aðgengilegar undir mínar síður á www.dalurinn.is.
Tags
ÞjóðhátíðAllt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-