Elliði Vignisson skrifar:
Er ábyrgt að breyta, breytinganna vegna?
- Búsetugæðin í Vestmannaeyjum meðal þess sem best gerist
16.Maí'18 | 09:50Tilfinning okkar Sjálfstæðisfólks er sú að almennt finnist fólki gott að búa í Vestmanneyjum. Í aðdraganda kosninga er gott að líta til mælinga hlutlausra aðila á stöðunni.
Allar athuganir sem unnar eru þessi misserin eiga það sameiginlegt að sýna á algerlega hlutlausan hátt að Vestmannaeyjar eru meðal allra best reknu sveitarfélga þessa lands og íbúar almennt ánægðir með búsetuskilyrðin.
Nú fyrir skömmu kynnti Vífill Karlsson prófessor rannsókn á hug íbúa nokkurra sveitarfélaga (frá Ísafirði, um vesturland, allt til Hornafjarðar) til búsetuskilyrða, aðstæður á vinnumarkaði ásamt afstöðu til nokkra mikilvægra atriða eins og hamingju þeirra, þjónust sveitarfélagsins og hvort þeir væru á förum frá landshlutanum svo það helsta sé tilgreint.
435 Eyjamenn 18 ára og eldri svöruðu 31 spurningu sem snéri að búsetugæðum. Enn sem fyrr kom í ljós að búsetu gæðin í Vestmannaeyjum –að mati íbúa sjálfra- eru meðal þess sem best gerist.
Í þessari stöðu verða íbúar að spyrja sig: „Er ábyrgt að breyta, breytinganna vegna?“
Elliði Vignisson
Bæjarstjóri
Höfundur skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.