Framkvæmdir á hundasvæði
Ætla að láta útbúa 600 m2 hundagerði
26.Apríl'18 | 06:57Í ljósi ábendinga sem borist hafa, sem og vegna góðrar nýtingar hundaeiganda á því svæði sem ætlað er sem hundasvæði tekur umhverfis- og skipulagsráð þá ákvörðun að láta útbúa 600 m2 hundagerði innan svæðisins til hagsbóta fyrir þá sem svæðið nota.
Þá leggur ráðið áherslu á að bekkjum og ruslatunnum á svæðinu verði fjölgað, segir í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar.
Þá segir að með þessari ákvörðun vilji ráðið koma til móts við þá fjölmörgu hundaeigendur sem nýta svæðið með reglubundnum hætti. Þegar er búið að panta girðingu, en afgreiðslutími hennar er a.m.k. 8 vikur. Ráðið felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs framgang málsins.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).