Herjólfur:
Sama fargjald frá Þorlákshöfn og Landeyjahöfn
- það er byggðastefna í verki, segir samgönguráðherra
10.Mars'18 | 11:53Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segir að á mánudag verði sama fargjald með Herjólfi hvort sem siglt er til Þorlákshafnar eða Landeyjahafnar.
„Sum okkar eru háð því að samgöngur á sjó séu skilvirkar. Ég hef lengi barist fyrir því að íbúar Vestmannaeyja búi við góðar samgöngur. Þjónustuna þarf að bæta og kostnaður að lækka sérstaklega fyrir fjölskyldur, ef Herjólfur getur ekki siglt frá Landeyjarhöfn, en þarf að fara frá Þorlákshöfn í staðinn.
Mér er því ljúft að segja frá því að frá og með mánudeginum verður sama fargjald, þó siglt sé í Þorlákshöfn. Það er byggðastefna í verki,“ segir Sigurður Ingi en þetta kom fram í ræðu hans á flokksþingi Framsóknarflokksins.
Mbl.is greindi frá.
Uppfært:
Um er að ræða lækkun á gjaldi fyrir farþega og fólksbíla þegar siglt er til Þorlákshafnar. Mun sama gjald gilda hvort sem siglt er til Þorlákshafnar eða Landeyjahafnar, segir í tilkynningu frá Eimskip.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).