Sjálfstæðisflokkurinn fellur frá röðun
- ákveðið að nefnd stilli upp á listann líkt og tíðkast hefur síðustu áratugina
21.Febrúar'18 | 10:46Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélganna í Vestmannaeyjum var samþykkt sl. mánudag að röðun færi fram ef 10 eða fleirri gæfu kost á sér í framboð. Sá fjöldi barst ekki og hefur kjörnefnd því hafið vinnu við uppstillingu eins og samþykktin hvað á um.
segir Ólafur Elísson formaður kjörnefndar.
Samkvæmt heimildum Eyjar.net höfðu allavega fimm einstaklingar gefið út að þeir hyggðust gefa kost á sér í röðunina. Það eru bæjarfulltrúarnir Elliði Vignisson, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Trausti Hjaltason og Birna Þórsdóttir. Einnig hafði varabæjarfulltrúi flokksins Margrét Rós Ingólfsdóttir gefið út að hún gæfi kost á sér í röðun.
Rétt er að rifja upp að upphaflega var gefið út af flokknum að það skildi farið í prófkjör í Vestmannaeyjum. Ekki hefur verið haldið prókjör í Eyjum síðan 1990 og var töluverður áhugi innan flokksins að fara prófkjörsleiðina. Þeirri ákvörðun var síðar snúið og þá var ákveðið að fara í svokallaða röðun.
Sú kjörnefnd sem kosin var til að annast framkvæmd röðunarinnar fær nú það hlutverk að stilla upp á lista Sjálfstæðisflokksins. Nefndina skipa samkvæmt samþykkt fulltrúaráðsfundar: Ólafur Elísson, formaður, Arnar Sigurmundsson, Bragi Magnússon, Elsa Valgeirsdóttir, Halla Svavarsdóttir, Ingólfur Jóhannesson og Silja Rós Guðjónsdóttir.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.