Ræða nýtt framboð í Eyjum
7.Febrúar'18 | 06:39Óánægðir sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum ræða um að bjóða fram sérlista við komandi bæjarstjórnarkosningar. Ástæðan er óánægja með að ekki skuli hafa verið ákveðið að efna til prófkjörs við val á lista flokksins.
Elís Jónsson, einn af þeim sem ræða framboð, telur yfirgnæfandi líkur á að af því verði. Ákvörðun hafi þó ekki verið tekin, að því er fram kemur í fréttaskýringu um framboð þetta í Morgunblaðinu í dag.
Elís er tilbúinn að taka að sér forystu nýs framboðs. Einnig hefur verið rætt um framboð við Írisi Róbertsdóttur, fulltrúa í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi varaþingmann í Suðurkjördæmi, en hún vill ekki svara því af eða á hvort það komi til greina.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.