Ferjan Bodö leysir Herjólf af í janúar
- skipið hefur leyfi til siglinga í Þorlákshöfn, á svokölluðu „B“ siglingasvæði
18.Desember'17 | 15:09„Vegagerðin hefur staðfest að búið sé að leigja ferju sem mun leysa Herjólf af í janúar þegar viðgerð á gír Herjólfs verður loks kláruð. Áætlað er að viðgerð taki um 14-16 daga.” segir Gunnlaugur Grettisson rekstrarstjóri Herjólfs í samtali við Eyjar.net.
Þá segir Gunnlaugur að frágengin sé leiga á farþegaskipinu Bodö í Noregi og samkvæmt samningi á skipið að geta lagt af stað frá Noregi 21/22. janúar n.k. Áætlað er að skipið verði verði komið til landsins 24. janúar.
Helsta lýsing á ferjunni Bodö er eftirfarandi:
Lengd 80 metrar
Breidd 18 metrar
Djúprista 3.7 metrar
Ganghraði 16.5 kn
Farþegafjöldi 345 manns
Bílafjöldi 80 fólksbílar og 10 flutningabílar
Búið 4 stöðugleika uggum.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).