Óvissa í Eyjum sögð skaðleg
- það er rosalegt áfall að fá ekkert fólk
27.September'17 | 06:23„Það hefði átt að vera fullt hjá mér um helgina en vegna þess að ekki er hægt að stóla á samgöngur hætti hópur við,“ segir Svava Gunnarsdóttir, eigandi gistihússins Hamars í Vestmannaeyjum.
Morgunblaðið setti sig í samband við eigendur nokkurra fyrirtækja í Eyjum til að kanna áhrif slæmra samgangna á milli lands og Eyja á rekstur þeirra.
Berglind Sigmarsdóttir, eigandi veitingastaðarins Gott, segir stöðugar samgöngur lykilatriði þegar rekstur fyrirtækja er annars vegar, einkum þeirra sem starfa í ferðaþjónustu. Að sögn hennar lokast Vestmannaeyjar hreinlega við aðstæður á borð við þær sem nú eru uppi.
„Þar sem við erum með lítið samfélag skiptir ferðamaðurinn fyrirtækið miklu máli. Það er því rosalegt áfall að fá ekkert fólk,“ segir Berglind í umfjöllun um samgöngumál Eyjamanna í Morgunblaðinu í dag, og bætir við að sér finnist menn ekki vanda nægjanlega til verka þegar kemur að því að tryggja eðlilegar samgöngur til Vestmannaeyja.
Tags
Samgöngur
Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).