Hugmynd til samgönguyfirvalda og Sæferða:
Væri ekki eðlilegt að sumaráætlun verði framlengd á meðan Herjólfur er í viðgerð?
- Eyjar.net hefur fengið ábendingar frá bæjarbúum varðandi framlengingu á sumaráætlun
12.September'17 | 08:32Á föstudaginn næstkomandi á að taka í gildi vetraráætlun Herjólfs með tilheyrandi fækkun ferða. Einungis 2 dögum síðar er áætlað að norska ferjan Röst hefji siglingar á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja.
Röst er með mun minni flutningsgetu og getur einungis flutt 235 farþega á móti 390 farþegum Herjólfs og 42 bíla á móti 50 bifreiðum sem komast um borð í Herjólf.
Því er sett fram sú hugmynd hvort ekki væri eðlilegt að sumaráætlun verði framlengd á meðan Herjólfur er í viðgerð?
Hér með er því skorað á samgönguyfirvöld og Sæferðir að skoða þessa hugmynd af fullri alvöru.
VETRARÁÆTLUN GILDIR TIL 14. MAÍ:
Vestmannaeyjar brottför: | Landeyjahöfn brottför: |
---|---|
08:30 - Alla daga | 09:45 - Alla daga |
11:00 - Alla daga | 12:45 - Alla daga |
16:00 - Föstudaga og sunnudaga | 17:10 - Föstudaga og sunnudaga |
18:45 - Alla daga | 19:45 - Alla daga |
21:00 - Mánud, fimmtud, föstud, laugard, sunnudaga | 22:00 - Mánud, fimmtud, föstud, laugard, sunnudaga |
SUMARÁÆTLUN GILDIR TIL 14. SEPT:
Vestmannaeyjar brottför: | Landeyjahöfn brottför: |
---|---|
08:30 | 09:45 |
11:00 | 12:45 |
13:45 | 14:45 |
16:00 | 17:10 |
18:45 | 19:45 |
21:00 | 22:00 |

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).