Afleysingaskip fyrir Herjólf kynnt á næstu dögum
30.Ágúst'17 | 07:16Bæjarráð fjallaði í gær um fyrirhugaðar viðgerðir á Herjólfi seinnihluta september og afleysingaskip fyrir Herjólf. Fram kom að ekki hafi enn fengist formlegt svar við því hvaða skip muni leysa Herjólf af á meðan á viðgerðum stendur.
Hins vegar lá fyrir tölvupóstur frá vegamálastjóra þar sem fram kom að vinna við að fá afleysingaskip væri vel á veg komin og vonir stæðu til að á næstu dögum yrði hægt að gera grein fyrir hvernig siglingum yrði háttað á meðan á slipptöku stendur.
Fullt haffæri til siglinga bæði í Þorlákshöfn og Landeyjahöfn
Bæjarráð ítrekar það sem áður hefur komið fram um að ekki komi á neinum tíma til greina að skip verði fengið til afleysingar fyrir Herjólf sem ekki hefur fullt haffæri til siglinga bæði í Þorlákshöfn og Landeyjahöfn.
Þá leggst bæjarráð eindregið gegn öllum lausnum sem fela það í sér að skip verði tekið af öðrum byggðalögum hér við land til að nýta í Vestmannaeyjum. Þá telur bæjarráð einnig brýnt að öllum takmörkunum á flutningsgetu þeirra skipa sem þjónusta Vestmannaeyjar verði mætt með fleiri ferðum, segir í bókun bæjarráðs.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).