ÍBV bikarmeistarar 2017
Bikarinn á leið til Eyja
12.Ágúst'17 | 20:05Knattspyrnulið ÍBV gerði sér lítið fyrir í dag og tryggði sér bikarmeistaratitillinn. Bikarinn er því á leiðinni heim til Eyja nú í kvöld. Það var Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem tryggði sigurinn með marki í fyrri hálfleik.
FH-ingar reyndu hvað þeir gátu til að jafna, en Eyjamenn voru einfaldlega sterkari í dag. lokatölur 1-0. Glæsilegur árangur hjá Kristjáni og strákunum öllum og öllum sem að liðinu standa.
Að sjálfsögðu verður móttaka á bryggjunni þegar strákarnir okkar mæta með bikarinn til Eyja með Herjólfi í kvöld! Mætum sem flest, samgleðjumst og fögnum!
Hér að neðan má sjá myndband sem Kristján þjálfari fékk Sighvat Jónsson til að gera til að koma strákunum í rétta gírinn fyrir úrslitaleikinn.

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.